Velkomin til Fredericia
Norbusanghátíðin sameinar barna- og unglingakóra frá öllum Norðulöndum,
til að syngja saman í vinnuhópum
halda tónleika
fá nýjar hugmyndir
eignast nýja vini og njóta samverunnar.
Verð og skráning
þátttökuverð: 1200 DKR
fullorðnir “kórforeldrar”: 1000 DKR
korstjórar: 0 DKR
skráningargjald: við skráningu borgar hver þátttakandi DKR. 200,-
við endanlega skráningu borgar hver þátttakandi DKR 1000,-
bankagjöld borgast af hverjum kór fyrir sig.
ef þátttakendur verða fleiri en í upphaflegri skárningu, borgast DKR 1200,- pr.prs.
ef þátttakendur eru færri en upphaflega ætlað, borgast skráningargjaldið ekki tilbaka
en dregst frá endanlegu gjaldi kórsins.
ef kórinn hættir við, borgast skráningargjaldið ekki tilbaka.
skráningin opnar 1. nóvember og síðustu möguleikar á skráningu eru 31. janúar 2024.
við dreifingu á þátttökuplássum, verður tekið tillit til, að öll Norðulöndin taki þátt.
skráningin er bindandi þegar skráningargjald hefur verið greitt.
skráningargjald skal greiðast strax eftir skráningu.
Vinnuhópar – sameiginlegt verk – kórtónleikar
aldur í hópunum er einungis til viðmiðunar
Sem kórstjóri geturðu valið að skipta kórnum þínum í fleiri hópa, en getur líka valið að láta alla syngja í sama vinnuhópnum og miðað þá við aldur meirihluta kórsöngvara.
Ekki er gert ráð fyrir undirbúningi fyrir vinnuhópana. En hluta vinnuhópsins í sameiginlega verkinu, þarf að læra að heiman. Nótur að sameiginlega verkinu verða sendar út í tæka tíð.
Hópur 1
9-11 ára
“Brottnám Freyju” – sviðssetning, humynd og tónlist: Tina Bucholtz
leiðbeinandi / stjórnandi: Tina Buchholtz
Langar þig að vera með í smá sviðsæfintýri um guði og álfa?
Við ætlum að syngja, dansa og leika, með Tinu Bucholtz, – og skapa spennandi frásögn um Norðurlöndin í eldgamladaga.
Við lofum því, að það verður gaman og félgasskapurinn góður.
Lögin í Brottnámi Freyju, fylgja ýmsum norrænum sönghefðum, með örlitlu popp-, rapp- og blús ívafi. Í þessum vinnuhóp einbeitum við okkur að túlkun og tjáningu og í að ná út til áhorfenda.
Í þessum vinnuhópi, er líka skapandi verkstæði, þar sem unnið verður að myndefni fyrir lokatónleikana.
Hópur 2
9-12 ára – norrænir tónar í námi og leik
Anne-Terese Sales býður uppá vinnuhóp þar sem leikur, nám og tónlist haldast i hendur – við syngjum lög, hlæjum og dönsum. Þessa Norbusang-helgi geta söngglöð börn frá öllum norðurlöndunum eignaðst nýja kórvini í gegnum samvinnuna í kórsöng. Anne-Terese kemur með fjölbreitt úrval af fallegum og skemmtilegum lögum og spennandi og lærdómsríkar æfingar, fyrir kórinn.
Leiðbeinandi: Anne-Terese Sales
Einning í þessum vinnuhópi er skapandi verkstæði þar sem unnið verður með myndefni sem verður notað á lokatónleikunum.
Hópur 3
12-15 ára
vinnuhópur fyrir jafnar raddir (SA) – leiðbeinandi: Birgitte Næslund Madsen – meira hér
vinnuhópur 3: Tónlistarsköpun í kór og tengsl á milli fólks.
Leikur með umskipti, túlkun og uppstillingar.
Í þessum hóp, mun Birgitte vinna með líkamlega orku, bæði hins einstaka söngvara og hópsins í heild, túlkun, þátttöku og samband bæði við hvert annað og við áheyrendur. Söngvararnir taka þátt í að búa til hreyfingar og kóreógrafíu í leikandi samstarfi.
Hópur 4
13-17 ára
vinnihópur fyrir jafnar raddir (SA) – leiðbeinandi Anne Lise Quorning
Kór og hreyfing
Á Norbusang-mótinu 2024, mun hópurinn kynnast uppáhaldsverkfærum Anne Líse, “kór-þrenningunni” þar sem solfa, Vocal Painting og kór-kóreógrafía – ásamt FLOW, munu sameinast í eina held. Þannig að; farið í góða skó, sem bæði skapa jarðtengingu og geta fært sig úr stað! Við ætlum að hreyfa okkur – og hreyfa við áheyrendum – og við verðum mjög “smitandi”!!
Hópur 5
16-29 ára
Vinnuhópur fyrir blandaðar raddir (SATB) – leiðbeinandi Severin Korsgaard
Þemað í hópi 5 eru Norrænar brýr / tengingar
Sameiginlegt verk – Við erum Norðurlönd
Allir kórsöngvarar á mótinu taka þátt í að læra ný-samið kórverk, sem var pantað fyrir mótið. Bæði texti og tónlist eru skrifuð fyrir þetta tækifæri, af Iben Krogsdal og Jakob Stevns-Lorentzen. Þemað er norræn goðafræði, guðirnir og hinn norræni andi allt frá ístíð til nútímans og kristni.
Verkið samanstendur af 6 þáttum á mismunandi erfiðleikastigum, og hver vinnuhópur mótsins mun vinna með einn þátt. Síðast þátturinn verður sunginn af öllum saman. Frumflutningur á verkinu verður á lokatónleikunum á laugardagskvöldinu. Sjálfboðaliðarnir á mótinu, sem sjálf syngja í kór, hvert í sínu heimalandi, hafa fengið hlutverk í sameiginlega verkinu. Þau munu m.a. skapa tengingu milli þáttanna og sjá um senuskipti á sviðinu.
Kórtónleikar
Syngið fyrir hvert annað – tónleikar
Það verða möguleikar á því fyrir alla kóra, að koma fram, annað hvort í Kristinebjergskólanum, í Christianskirkjunni eða á götum bæjarins, föstudag eða laugardag.
Kórinn getur valið á koma fram í 5 mínútur í Christianskirkjunni á fimmtudagskvöldið og/eða 10-15 mínútur í skólanum, eða á götum Fredericia.
Koncert NORD
Föstudagskvöld í Christianskirkjunni, fyrir alla.
Vokalgrúppan Dopplers
Með NORD-tónleikunum sækjast Dopplers eftir að lýsa náttúrunni og hringrás lífsins í norrænum hljóðheimi. Tónlistin sem samastendur af bæði tónverkum hópsins og þjóðlagatónlist, tengist frumefnunum fjórum: vatni – eldi – jörð og lofti og mun leiða okkur í gegnum árstíðirnar. Tekstarnir eru á norrænum tungumálum.
Dopplers er vokalgrúppa sem leggur áherslu á sviðsframkomu og performans, og er stjórnað af Astrid Vang-Pedersen. Hópurinn vinnur að einstökum verkefnum, með mismörgum söngvurum og einbeitir sér að, að skapa einstaka tónleikaupplifun, þar sem áheyrendur taka þátt, sviðframkoman er áhrifamikil og byggir á frásögnum og kóreógrafíu. Dopplers semja sjálf mikið af sínu efni, sem oftar en ekki er á mörkum þjóðlaga- , vísna- og popptónlistar.
https://www.youtube.com/watch?v=-t55Caih8mE
ferðast til Frederecia
Við mælum með taka lest til Fredericia station (lestarstöðvarinnar), og þaðan með strætó til Kristinebjergskolen. Einnig er hægt að fljúga beint til Billund og taka lest eða eigin rútu þaðan, eða sigla til Hirtshals eða Frederikshavn – og áfram með lest eða eigin rútu.
Ferðir með rútu / strætó og lestum, innanlands í DK: www.rejseplanen.dk